the secret
20.08.2007 21:30:16 / thesecret

Leyndarmálið

Leyndarmálið

Heimurinn okkar stjórnast af lögmálum. Eitt merkasta lögmálið er lögmál aðdráttar og aðlöðunar. Allt sem kemur inní líf þitt er tilkomið vegna hugsana þinna og gerða. Þú laðar hlutina til þín, ekkert kemur bara af sjálfu sér. Þú ert skapari þíns eigin heims.

Um þetta og margt annað fjallar bókin The Secret, Leyndarmálið, og samnefnd kvikmynd sem hægt er að panta sem DVD, til dæmis í gegnum Amazon.

Höfundurinn, Rhonda Byrne, hefur tekið saman annars vegar fjölmörg gullkorn gamalla meistara og hins vegar tekið viðtöl við fjölmarga núlifandi spekinga. Allt þetta birtir hún í bókinni og kvikmyndinni.

Á blaðsíðu 25 í bókinn The Secret er stutt samtantekt á leyndarmálinu:

Stóra leyndarmál lífsins er lögmál aðlöðunar og aðdráttar.

Þetta lögmál segir að líkt laði líkt til sín. Þegar þú hugsar ákveðna hugsun, þá laðar þú líkar hugsanir að þér.

Hugsanir búa yfir segulorku. Þær hafa ákveðna bylgjutíðni. Þegar þú hugsar, þá sendir þú hugsanir útí heiminn. Þínar hugsanir laða að sér allt það sem er líkt og á sömu bylgjutíðni. Allt sem er sent út, kemur til baka til upphafsins - þín.

Þú ert eins og mannlegur endurvarpsturn sem sendir út bylgjur með hugsunum þínum. Ef þú vilt breyta einhverju í lífi þínu, breyttu bylgjutíðninni með því að breyta hugsunum þínum.

Núverandi hugsanir eru að skapa framtíð þína. Það sem þú hugsar hvað mest um eða einbeitir þér mest að, það mun birtast sem líf þitt.

Hugsanir þínar verða að hlutum og atburðum.

Í bókinni sem er um 200 blaðsíður að stærð er farið ítarlegar í þetta mál og þá útfrá margs konar sjónarhornum, svo sem varðandi peninga, samskipti og heilsumál.

The Secret eftir Rhondu Byrne og fleiri fæst í flestum bókabúðum landsins, enda farið sigurför um allan heiminn á liðnum árum. Frábær bók sem hægt er að mæla með fyrir alla.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 21:28:35 / thesecret

Leyndarmál

THE Secret, Leyndarmálið, tekið saman af Rhondu Byrne frá Ástralíu, hefur vakið geysimikla athygli um allan heim. Það er nær sama hvar þú ert eða við hverja þú talar, fljótlega minnist einhver á The Secret. Hér er meginþráðurinn að einstaklingurinn geti nýtt eigin viljastyrk til að stjórna hugsunum sínum, tilfinningum, athöfnum og árangri. Hér er ekki um nýjar aðferðir að ræða heldur er hér lögð áhersla á að deila aðferðunum með sem flestum til aukins árangurs og velgengni fyrir alla sem hafa áhuga á. Myndbandið The Secret er áhugaverð blanda af leiknum atriðum og umfjöllun valdinna fyrirlesara sem eiga það sameiginlegt að aðstoða aðra við að ná hámarksárangri. Í bókinni The Secret er að finna ýmsa fróðleiksmola sem veita dýpri innsýn.

 

Þú berð ábyrgð

Í langflestum tilvikum berum við sjálf ábyrgð á persónulegri líðan okkar. Ef aðstæður okkar eru aðrar en við viljum er vert að huga að því hvernig við nýtum eigin færni til að hugsa og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Fyrsta skrefið er að vita hvað þú vilt. Hvernig viltu hafa framtíðina? Hvað viltu vera, gera og eiga? Hverju viltu fá áorkað? Hvað viltu skilja eftir þegar þú hverfur héðan að kvöldi dags?

 

Áhrif orkuflæðis og aðdráttarafls

Allt í umhverfi okkar byggist á ákveðnu orkuflæði. Þar sem hugsanir þínar sendi eftir eðli sínu ýmist jákvæðar eða neikvæðar orkubylgjur út í umhverfið getir þú nýtt þér aðdráttarlögmálið (Law of Attraction) þér í hag. Hugsanir þínar geti virkað eins og nokkurs konar segull sem dragi að sér aðstæður, tækifæri o.fl. sem séu í samræmi við margendurteknar hugsanir þínar séu þær tengdar sterkum tilfinningalegum upplifunum. Þannig getir þú aukið vellíðan þína, velgengni og auðlegð.

 

Hugsun, tilfinning, framkvæmd

Allt byrjar með hugsuninni. Notaðu því færnina sem enginn getur tekið frá þér, færnina til að hugsa. Breyttu því hvernig þú hugsar og um leið getur þú breytt lífi þínu því þú ert það sem þú hugsar, upplifir tilfinningalega og framkvæmir. Settu þér skrifleg, tímasett og raunhæf markmið. Skrifaðu markmiðin í fyrstu persónu eintölu og í nútíð. Notaðu mikið af sterkum lýsingarorðum til að lýsingin verði sem áhrifaríkust. Skrifaðu lýsingu á draumadeginum. Klipptu út myndir sem eru táknrænar fyrir óskir þínar og búðu þér til markmiðamynd (nánar lýst á www.blomstradu.net). Þú þarft ekki endilega að vita hvernig þú ætlar að fara að því að ná markmiðunum því þú getur leitað þér þekkingar og leiðsagnar síðar. Aðalatriðið er að ákveða hvað þú vilt. Leggðu áherslu á það sem þú vilt, ekki á það sem þú vilt ekki. Ef þú setur neikvætt orð eins og t.d. skuldir inn í markmiðið þá er hætta á að undirmeðvitundin haldi áfram að tengja hugsanir þínar við skuldirnar. Gerðu ráðstafanir til að borga skuldirnar en lýstu fjárhagslegu frelsi í markmiðasetningunni.

 

Ímyndaður raunveruleiki

Hugsanir okkar eru almennt í myndrænu formi. Þegar þú veist hvað þú vilt vera, gera og eiga, þá skaltu slaka vel á og æfa þig í að upplifa nýju lífsmyndina sem raunveruleika í huganum. Ekki horfa á þig utan frá heldur æfðu þig í að framkalla vellíðunartilfinningu yfir að hafa náð þessum markmiðum þínum. Gerðu þetta sem oftast og ekki síst rétt fyrir svefninn.

 

Hvað er auðlegð?

Hvernig þú metur auðlegð fer eftir þínu eigin gildismati. Sumir taka andlega auðlegð fram yfir þá veraldlegu, sumir vilja ferðast um heiminn – aðrir fjárfesta í fasteignum. Hvað er þér mikilvægast?

Það er ekkert rangt við að vilja njóta meiri fjárhagslegrar auðlegðar, búa við fjárhagslegt frelsi og geta gert það sem þig langar til að gera – þegar þig langar til þess. Fjárhagsleg auðlegð veitir þér einnig fleiri tækifæri til að leggja öðrum lið, hjálpa öðrum til að hjálpa sér sjálfir.

 

Eigin væntumþykja og sjálfsvirðing

Ef þú vilt að öðrum þyki vænt um þig og sýni þér virðingu þá verður þér að þykja vænt um þig og þú verður að bera virðingu fyrir þér. Eigin væntumþykja og sjálfsvirðing er ein forsenda þess að þú getir veitt öðrum verulega væntumþykju, ánægju og gleði.

 

Áhugavert efni

Það er mikið ánægjuefni að orðspor efnisins The Secret skuli hafa náð til svo margra hér á landi. Ég vil hvetja fólk til að kynna sér þetta efni sem best því það á svo sannarlega erindi til allra (sjá www.thesecret.tv).

Fyrirlesararnir á myndbandinu eru flestir vel þekktir í Bandaríkjunum á ýmum sviðum tengdum árangurssálfræði og auðvelt er að nálgast margs konar áhugavert ítarefni af vefsíðum þeirra. Upplýsingar um vefslóðir, umsagnir um áhugaverðar bækur og geisladiska eftir þessa aðila og fleiri má sjá á www.blomstradu.net. Þar er einnig fjallað um íslenska sjálfseflingarnámskeiðið Blómstraðu! en þar er að finna margt sem á beinan samhljóm með efninu í Leyndarmálinu, The Secret.

Leyfðu þér að blómstra, njóttu þess að skapa þér blómlega framtíð.


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg